Valkyrjan er lífsstílsleiðarvísir og vinnubók fyrir konur á öllum aldri sem vilja móta líf sitt, búa sér til skýra sýn á framtíðina, finna eldmóðinn og takast á við markmið sín á markvissan og skemmtilegan hátt.
Handbókin er full af áhrifamiklum spurningum, áskorunum og leiðbeiningum sem koma til með að leiðbeina þér áfram í lífinu. Bókin kemur að góðum notum fyrir allar konur sem vilja taka sig á, móta hugsanir sínar og byggja upp blómlega og betri framtíð.