L-Carnitine

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

CarnitineAlmennt:
Carnitine er í hópi þeirra efna er kallast "ekki vítamín næringarefni" Carnitine er til í tveimur formum þ.e. D- og L- , þar er hinsvegar aðeins L-Carnitine sem er líffræðilega virkt. L-Carnitine fannst árið 1905 í vöðvasýnum, það var hinsvegar fyrst 1959 að sýnt er fram á að L-Carnitine örvar fitubruna ( beta oxun ) í frumum. Það er hluti flutningarkerfis em flytur fitu inn í orkukorn frumunnar, þar er fitan brennd sem orka.


Nýlegar rannsóknir hafa uppgötvað fjölda læknisfræðilegra nota fyrir L-Carnitine, eins og hjartasjúkdóma, sykursýki, afkastaukningu, megrun, lifrarsjúkdómum, nýrnasjúkdóma, vissa vöðvasjúkdóma og og meðfæddan skort á L-Carnitine. Fæðuuppspretta: Fæða úr dýraríkinu er venjulega rík af L-Carnitine en grænmeti, kornmatur og ávextir innihalda hinsvegar lítið magn. Jafnframt framleiðum við sjálf hluta efnisins. Kindavöðvi inniheldur mest magn (210 mg/100 g, lambakjöt 78 mg/ 100 g, kjúklingur 7,5 mg/ 100 g) Vöðvar innihalda mest magn hjá okkur sem jafnframt endurspeglar hutverk þess í vöðvum m.a. að flytja fitu inn í orkukorn frumanna til brennslu. Að jafnaði er talið að við fáum 100-300 mg af L-Carnitine á dag með fæðu en eigin framleiðsla er um 100 mg á dag. Hlutverk L-Carnitins:

Eins og áður hefur verið komið inn á þá er hlutverk Carnitins fjölbreytt. Hér skal þó sérstaklega fjallað um hlutverk þess hvað varðar fitu. L-Carnitine er eins og flutningarbíll sem, flytur fitusýrur úr umfrymi fruma og inní orkukornin til brennslu. Á útleiðinni ber það með sér úrgangsefni og kallast þá acetyl-Carnitine. Því lægra sem acetyl-Carnitin er í blóði og því merira frítt Carnitine sem finnst þar, því meira örvast fitubrennslan.

Helstu hlutverk L-Carnitins eru:

  • Flytja fitu inn í orkukorn til brennslu og úrgang brennslunar út úr frumunni.
  • Að taka þátt í efnaskiptum greinóttra amínósýra sem draga úr vöðvaniðurbroti.
  • Í nýmydun sykurs, minnkar ammoníak í blóði og vefjum.
  • Minnkun mjólkursýru í blóði.
  • Örvar afeitrun sumra lyfja.
  • Tekur þátt í myndun sumra taugaboðefna. Hjartasjúkdómar og fita:
    L-Carnitine hefur verið rannsakað mikið í ýmsum hjarta og æðasjúkdómum og hefur margvísleg jákvæð áhrif eins og :
  • Lækkun á kólesteróli og þríglýseríðum.
  • Minnkar skemmdir í hjartavöðva við kransæðastíflu.
  • Minnkar hættu á hjartsláttartruflunum eftir hjartadrep.
  • Minnkar hættu á hjartaöng við álag.
  • Fækkar dauðsföllum vegna hjartavöðvabólgu.
  • Eykur göngugetu hjá fólki með æðaþrengsli í fótum.
  • Þau áhrif L-Carnitins sem mesta athygli hafa vakið eru þó áhrif þess til fitutaps í fólki sem vill megra sig og sérstaklega losna við fitu. Tilraunir hafa sýnt að skammtar frá 500 mg/dag til 4 g auka töluvert hluta fitu í orku sem brennt er við þolæfingar. Stærri skammtarnir af L-Carnitine auka brennsluna meira. Ýmislegt bendir til þess að þeir sem eru of feitir hafi lægra magn af L-Carnitins í blóði. Það gildir þó eins og áður að efnið verkar best með hollu mataræði og hreyfingu. L-Carnitine er eitt minnst eitraða efni sem fyrir finnst. Risaskammtar um 0,5 kg valda aðeins niðurgangi og skammtur sem veldur dauða hefur ekki fundist.

     

    Einar Ólafsson lyfjafræðingur hjá Medico ehf (s 5454200) höfundur þessarar greinar veitir sérfræðiráðgjöf til íþróttafélaga og einstaklinga varðandi þennan málaflokk.



    Deila
     

    Hvert er þitt álit?


    Security code
    Endurhlaða

    sta

    bodybuilding_anatomy

    Womens_strength

    stretching_anatomy

    yoga_anatomy

    running_anatomy

    cycling_anatomy

    swimming_anatomy

    golfanatomy