Hjá íþróttafólki hefur Glutamin verið mikið í umræðunni að undanförnu. Þetta er eðlilegt þar sem mjög mikil aukning á fjölda læknisfræðilegra, næringarfræðilegra, lífeðlisfræðilegra og annarra vísindalegra greina hefur átt sér stað sem sýnir fram á mikla gagnsemi Glutamins fyrir íþróttafólk og reyndar allan almenning.
Verkun Glutamins er ákaflega fjölbreytt og reyndar fjölbreyttust af öllum aminosýrunum, sjá nánar töflu 1. Glutamine gagnast bæð kraft og snerpu íþróttafólki og þolíþróttafólki, þótt það sé með nokkuð ólíkum hætti.
Hvað er Glutamine:
Þegar við tölum um Glutamine þá er hér átt við L-Glutamine, en það er það form sem er líffræðilega virkt. Glutamine er algengasta aminosýran í líkamanum. Þrátt fyrir mikinn fjölda lífhvata háðra efnahvarfa sem Glutamine tekur þátt í þá og sem stuðla að lækkun á Glutamini þá er magn Glutamins í blóðvökva engu að síður hæst af öllum aminosýrunum eða 0,5-0,9 mmol/L. Það sama er varðandi magn Glutamins á fríu formi inni í vöðvafrumum sjá nánar töflu 2. Glutamine er ekki lífsnauðsynleg aminosýra þar sem við getum búið hana til sjálf en ef við önnum ekki eftirspurn vegna mikillar þarfar eða veikinda (2,3) þá verður hún lífsnauðsynleg.
Glutamine og Glutamic sýra:
Þessar tvær aminosýrur eru náskyldar. Glutamine gegnir lykil hlutverki í að viðhalda köfknunarefni í vöðvum, útskilnað á ammonium og að viðhalda aminosýru jafnvægi.. Glutamate tekur þátt í orkubúskapnum og umbreytingu á amínosýrum, framleiðslu á þvagefni og Glutathione. Þar sem Glutamate og Glutamine eru efnafræðilega séð mjög líkar og geta ummyndast í líkamanum yfir á hvora aðra, skiptir þá nokkru máli hvort Glutamate eða Glutamine er tekið sem bætiefni. Til þess að hækka Glutamine magn okkar þá er u.þ.b þrisvar sinnum árangursríkar að taka Glutamine heldur en Glutamate. Glutamate getur einnig verið eitrað fyrir taugar eins og kom fram í svokölluðu " Chinese restaurant syndrom" þar sem notað var Natriumglutamate. Niðurstaðan er einföld Glutamine er besta efnið eða efni eins og OKG sem umbreytist í Glatamine í líkama okkar eru best til þess að hækka Glutamine forða í blóði og vefjum.
Hvað gerir Glutamine ?
Verkun Glutamins er fjölbreytt eins og neðangreind tafla sýnir, það sem er þó mikilvægast fyrir íþróttafólk er verkunin gegn vöðvaniðurbroti, styrking ónæmiskerfsins, aukin glycogen framleiðslu og útskilnaður á ammonium (9). Glutamine tekur þátt í ammonium útskilnaði um nýrun og glycogenframleiðslu í lifur, Glutamine gegnir lykil hlutverki í Glucosu-Alanine hringnum. Þegar vöðvaniðurbrot á sér stað það er prótein eru brotin niður í fríar amínósýrur og þeim brennt sem orku þá tengist amino hópur Gutamic sýru sem ummyndast þá yfir í Glutamine. Glutamine er síðan breytt yfir í alanine sem síðan umbreytist í Glucosu í lifur þaðan fer Glucosinn yfir í vöðva (Glycogen) og þar er honum síðan brennt samkvæmt svokölluðum " Krebs hring" (4). Þegar um mikið álag er að ræða eða þegar mikið reynir á þol þá losnar mikið af Glutamine úr vöðvum til þess að auka ónæmis viðbrögð, auka starfsemi þarmanna, auka glycogen framleiðslu í lifur, auka útskilnað á ammonium um nýrun og þá sem þvagefni og hefur þannig áhrif á stjórnun sýrustigs í líkamanum. Glutamin hefur einnig mikilvægu hlutverki að gegna varðandi kjarnsýrur, svo og nýmyndun sérstakra amino sykra, gamma amino smjörsýru (GABA). Að lokum er Glutamine nauðsynlegt til myndunar glutatione sem er mikilvægasta vatnsleysanlegasta andoxunarefnið inni í frumum. Glutamine er mjög öruggt efni engar eitranir hafa komið fram við gjöf Glutamins sem fæðubótarefnis.
Læknisfræðileg not:
Glutamine hefur verið notað almennt gegn vöðva niðurbroti sem hefur átt sér stað vegna langvarandi veikinda, áverka, sýkinga,beinmergsskiptingu (12), krabbameinsmeðferð og hefur það borið mjög góðan árangur. Sem hvati á ónæmiskerfið og þá sérstaklega sem hvati á Interlaukine 2 ( IL-2). Nýlegar rannsóknir benda einnig til jákvæðra áhrifa á geðheilsu og þá sérstaklega gegn reiði og þunglyndi.
Tafla 1
Hin fjölbreytta verkun Glutamins.
Aminosýru forði ( gegn vöðvaniðurbroti)
Styrkir ónæmiskerfið ( IL-2)
Amino sykrur -glycosaminoglycan
Ammonia framleiðsla -nýru
Ammonia gleypir
Forefni í GABA-taugaboðefni
Glukósu / Glycogen framleiðsla - lifur
Glutathione (andoxunarefni)- framl. lifur
Orkugjafi -bruni
Flutningur á köfnunarefni- endurmyndun próteina
Kjarnsýru framleiðsla
Prótein framleiðsla
Þvagefnis framleiðsla -nýru
Tafla 2
Magn valdra amino sýra í blóðvökva og vöðvavef.
Amino sýra - Blóðvökvi - Vöðvi
Alanine - 33 - 110
Glutamate - 12 - 830
Glutamine - 65 - 1040
Glycine - 34 - 62
Leucine - 17 - 11
Lysine - 38 - 93
Phenylalanine - 7 - 6
Valine - 19 - 15
Einingarnar í báðum tilfellum eru: pmol/100 ml
Skammtar og inntaka:
Fyrst ber að hafa í huga hvenær er mest hætta á vöðvaniðurbroti og hvernig kem ég í veg fyrir slíkt. Mest vöðvaniðurbrot á sér stað strax eftir erfiða æfingu. Í þessu tilfelli skiptir það ekki máli hvort um er að ræða erfiða styrktarþjálfun eða þolþjálfun. Verulegt Glutamine fall á sér stað í báðum tilfellum. Til þess að vinna gegn vöðvaniðurbroti og reyndar öllum hinum óæskilegu áhrifum Glutamins skort þá er um að gera að taka Glutamine inn fyrir átökin. Best er að taka Glutamin inn í 2-3 skömmtum fyrir átökin og að hver skammtur sé u.þ.b. 2-5 g. Ef þetta reynist erfitt í framkvæmd takið þá 4-8 g Glutamine inn 1 klst fyrir æfinguna. Það er of seint Að taka efnið inn eftir æfinguna þegar niðurbrotsfasinn er farinn á fulla ferð. Enginn ákveðinn dagsskammtur er til fyrir Glutamine og verið því ekki undrandi þótt þið rekist á aðra dagsskammta heldur en þessa, en þetta er stærðargráðan sem mest hefur verið notuð í rannsóknum. Þá daga sem ekki er æft er minni þörf á auka skammti af Glutamine. Til þess að nýta sér þá hormonal toppa sem eiga sér stað við æfinguna til vöðvauppbyggingar þá er sjálfsagt að taka einnig inn einhverja góða prótein blöndu ( Amino fuel, Egg fuel, Nitro fuel…..) strax fyrir eða strax eftir æfinguna. ásamt kolvetnum. Hjá snerpu og kraftíþróttafólki er megin áherslan lögð á prótein hlutann en minni áhersla á kolvetnahlutann, en hjá þol íþróttafólki er þessu öfugt farið.
Niðurstaða:
Glutamine er ákaflega spennandi efni sem er vel rannsakað og kemur íþróttafólki að miklu gagni og þá sérstaklega til þess að varna vöðvaniðurbroti og til þess að styrkja ónæmiskerfið. Það er því sannanlega óhætt að mæla með Glutamine fyrir allt íþróttafólk. Það er oft styttra í ofþjálfun þar sem einkennin eru meðal annars þreyta, áhugaleysi og sýkingar það er meðal annars í slíkum tilfellum sem Glutamine kemur einnig að verulegu gagni. Athugið að úr OKG (Ornitine alfa ketoglutarate) myndast Glutamine þ.e. þegar alfa ketoglutarate brotnar frá Ornitine og fer á stað í blóðrásinni og bindst ammonium þá myndast Glutamine sjá nánar fyrri grein í íþróttablaðinu Glutamine er til í hreinu formi bæði sem duft og hylki. Munið að velja einhvern viðurkenndan og vandaðan framleiðanda þar sem þið getið verið örugg um hreinleika efnisins.
Einar Ólafsson lyfjafræðingur hjá Medico ehf (s 5454200) höfundur þessarar greinar veitir sérfræðiráðgjöf til íþróttafélaga og einstaklinga varðandi þennan málaflokk.
Deila










