Margþætt áhrif króms

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Ég rakst á grein í fréttablaðinu, held það hafi verið 29 maí. Ég læt hana flakka hér fyrir neðan.

Margþætt áhrif króms:

Steinefnið króm er nauðsynlegt fyrir orkubúskap líkamans vegna hlutverks þess í efnaskiptum glúkósa. Það er þó ekki það eina sem krómið gerir fyrir líkamann heldur er það einnig mikilvægt í efnahvörfum kólesteróls, fitu og próteina.

Króm stuðlar að stöðugu blóðsykurmagni og minnkar því matarlyst og löngun í sætindi. Það hefur verið notað með góðum árangri til að hækka góða kólesterólið í blóðinu og lækka það slæma. Þá er það talið hindra slagæðastíflur og hjartasjúkdóma ásamt því að auka virkni ónæmiskerfisins.

Króm pikkólínat hvetur til þyngdartaps og uppbyggingar vöðva og er því mikið notað bæði af einstaklingum í megrun og þeim sem stunda íþróttir en íþróttamenn þurfa mun meira magn af krómi en aðrir þar sem áreynsla eykur útskilnað þess margfalt.

Þá má nefna að í bókinni "Hættum að eldast" er þeirri kenningu varpað fram að króm stuðli að langlífi og hægi á öldrun en einnig er krómið talið geta haft góð áhrif á húð þeirra sem kljást við unglingabólur. Skortur á krómi getur valdið gláku, kvíða, þreytu, sykuróþoli, óeðlilegum efnaskiptum amínósýra og aukinni hættu á beingisnun.


Deila
 

Hvert er þitt álit?


Security code
Endurhlaða

sta

bodybuilding_anatomy

Womens_strength

stretching_anatomy

yoga_anatomy

running_anatomy

cycling_anatomy

swimming_anatomy

golfanatomy